26ágúst

Fjársjóðleit 25. ágúst

 

Vóó! Guð er að gera svo mikið í lífi mínu :) Hann er magnaður. Hann er bylting! ;) Ég fékk þá góðu hugmynd að skrifa niður vitnisburði úr mínu eigin lífi svo ég muni eftir því góða sem Guð hefur gert fyrir mig. Þá geta líka þeir sem vilja lesið og uppörvast.

Byrjum á því sem gerðist í gær. Ég, Kristín systir mín og Rósa fórum saman í Blikanes á leið í Fjársjóðsleit. Þegar við komum þá voru þau sem höfðu mætt byrjuð að hlusta á Heilagan Anda. Við hlustum líka og þurfum að hafa hraðann á því tíminn þurfti að nýtast vel. Ég ákvað að halda gagnrýni minni á orðin sem Heilagur Andi var að gefa mér í lágmarki og skrifa niður allt sem ég heyri (ekki með mínum náttúrulegu eyrum). Ég var fljótur að fylla listann og svo var skipt í hópa. Ég, Rósa, Henna, Kristbjörg og frábær kona sem heitir Stína vorum saman í hóp. Eftir samanburð fjársjóðskortanna ákváðum við að fara í miðbæ RVK.

Við lögðum hjá Hallgrímskirkju og ætluðum að labba þaðan niður á Laugaveg og svo lengra niður í bæ. Á leiðinni niður Skólavörðustíg sé ég mann í rauðri peysu í fylgd með tvem konum. Hann var á kortinu mínu  og Guð gaf mér vissu um að þetta var fjársjóðurinn.  Ég og Rósa laumumst upp að þeim og byrjum að tala við þau. Við létum þau vita að þau væru fjársjóður Guðs í dag og að hann elskaði þau mjög mikið. Þau voru frá Tékklandi og leyfðu okkur að biðja fyrir sér. Eftir bænina voru þau mjög blessuð og glöð yfir að hafa hitt okkur. Við sáum hvað andrúmsloftið hafði breyst og að þau voru þakklát að hafa hitt okkur. Mitt í þessu öllu gáfu þau mér lítinn lykil sem þau kölluðu „Key to success" sem var mjög fyndið allavega hvernig það gerðist. 

Á Laugavegi héldum við áfram í grenjandi rigningu. Á kortinu mínu hafði ég skrifað Stuttbuxur meðal annars. Við í hópnum töluðum um hvað það væri ólíklegt að einhver væri í stuttbuxum í þessu veðri og ef við fyndum einhvern hvað það væri algjör staðfesting á því sem við höfðum heyrt frá Guði. Stuttu seinna grípur Henna í mig og bendir mér á mann í Stuttbuxum hinum megin við götuna á leið inní bíl. Við  göngum í áttina að bílnum þegar hann er við það að keyra út Laugaveginn. Hann tekur eftir okkur og skrúfar niður rúðuna (sem var magnað því við höfðum ekki reynt að ná athygli hans!).  Hann sagðist vera tímabundinn en við náðum samt að segja honum að Guð elskaði hann mjög mikið. Hann gladdist og þakkaði okkur fyrir og svo keyrði hann í burtu.

Rósa hafði fengið appelsínugul föt og var með augun opin. Við settumst inná kaffihús og fengum okkur kaffi þegar hjón komu inn. Konan var í ljósblárri úlpu sem ég hafði á listanum mínum og maðurinn hennar fór úr jakkanum og var í appelsínugulri peysu. Double fjársjóður! Ég, Rósa og Henna fórum til þeirra og sögðum þeim hvað við værum að gera og að þau væru fjársjóður Guðs í dag. Þau voru fyrst lokuð og svöruðu að þau væru Atheistar og Guð væri ekki vinur þeirra þegar við sögðum þeim að Guð elskaði þau. Við gáfumst ekkert upp og sögðum að það skipti engu hvort þau væru vinir hans eða ekki, Guð elskaði þau samt. Maðurinn þáði fyrirbæn og Guð mætti með nærveru sína á staðinn. Þau voru mjög blessuð eftir bænina og ég er alveg viss þetta var bara byrjun á því hvernig Guð ætlar að draga þau til sín.

Úff þetta er alltof langorðað.. ég ætla að reyna að skrifa minna.

Rósa var með vinnumann (mann í vinnufötum) á listanum sínum. Við fundum hann á höfninni (segl, bátur, og fl. var á kortinu) og stelpurnar töluðu við hann. Maðurinn var með bakverk og þær báðu fyrir því og blessun yfir manninn.  Manninum leið vel eftir á þó bakið hafði ekki læknast samstundis og sagðist vera glaður að vita til þess að einhver hugsaði um hann.

Á leiðinni aftur í bílinn löbbuðum við framhjá ísbúðinni á Ingólfstorgi og komum auga á konu í gulum buxum fyrir utan búðina að borða ís með tveim mönnum. Ísbúð og gular buxur voru á kortinu. Við löbbuðum upp að þeim og sögðum þeim frá fjársjóðsleitinni. Annar mannanna þáði fyrirbæn fyrir bakinu sínu og minntist líka fjármál. Við báðum fyrir því og honum leið vel eftir á en var þó samur í bakinu. Honum fannst þó að við hefðum ekki þurft að biðja fyrir fjármálum hans því hann hafði bara verið að grínast. Við sögðum að það væri bara í fínu lagi því Guð elskar að blessa, líka fjármál. Þau voru öll blessuð eftir að hafa hitt okkur og séð og heyrt boðskapinn sem við fluttum um Guðs kærleika.

Takk fyrir mig.. meira seinna

Verið blessuð! og hlaupið á eftir Guði með öllu sem þið eigið.!

Hey! ef þið viljið koma vitnisburðum á framfæri en hafið enga leið til þess þá getið skrifað vitnisburðinn í komment eða jafnvel sent mér hann og pósta hann hér..

26. ágúst 2009 klukkan 14:07
Ólafur Jón Magnússon
Almennt
2 athugasemdir
12janúar

somekind of poem

I wanna meet you face to face.
Heart to heart, your perfect grace.
I wanna live for you , around you.
My life is caused by you, my heart to.
Jesus, you fill my life with love,
Heart with hunger, my palms with power.
Face to face with you, heart to heart,
your heart.
Still I‘m far away, far from your way.
Still my heart is poisoned,
but you say you see its art.
I thougt I would never start but
I´m on my way, more humble every day.
You’re blowing me away,
away from it all except your love.
Your love.
                                         ólijón<
12. janúar 2009 klukkan 10:37
Ólafur Jón Magnússon
Tónlist
3 athugasemdir
23apríl

Ferðalag..

Merkilegt þetta líf, þessir dagar. Maður gengur áfram lífsins leið þótt maður viti ekki hvar hún endar. Fetar í fótspor annarra. Treður slóð annarra í stað þess að búa til nýjan stíg. Lifum jafnvel lífi annarra. Lítum í kringum okkur og leitum að hamingju. Gefumst upp áður enn við finnum hana. Sjáum “hamingjusamt fólk” í kringum okkur. Hugsum: ,,Þau hljóta að hafa fundið hamingjunna” reynum svo að finna hamingjuna með því að elta þau en finnum hana aldrei því við fylgjum ekki okkar eigin stíg. Það er erfitt að vera frumkvöðull og ryðja sína leið sjálfur. Það verður líka mörgum of erfitt verkefni. En með Guði getum við allt.
Hvaða hindranir eru of stórar fyrir Guð? Hvaða hindrun er það sem við erum að takast á við og treystum Guði ekki fyrir?
Guð treystir okkur og hann trúir á okkur. Hví ekki að gera slíkt hið sama og endurgjalda þetta traust. Biðjum Guð um að frelsa okkur frá þessum hindrunum í lífi okkar. Hann mun svara okkur. Svarið gæti samt ekki verið svarið sem við bjuggumst við. Það gæti verið að við værum ekki í hans áætlun. Það gæti verið að við séum að glíma við hindranir sem við þurfum ekki að takast á við. Biðjum Guð um að sýna þér sína áætlun fyrir okkar líf. Því hans áætlun er hamingja! Guð sér möguleikanna í okkar lífi þótt við sjáum þá ekki. En Guð veit hvað hann getur og sér því möguleikanna í okkar lífi eins og við værum í krafti hans. Leitum ekki einungis eftir krafti hans og nærveru í erfiðleikum heldur líka á góðu stundunum. Því þá verður lífið svo miklu skemmtilegra..
Heyri ég Amen..
 

THE JOURNEY

Have you found what you came here searching for?
Or do roads of confusion still wind,
Down an endless stretch through the highways of life,
Yearning for morning's true light?

Does your heart feel the warmth of contentment
That you ached so long to receive?
Has your soul been drenched in the peace which you languished
Alone in your hour of need?

Is the crowd a companion to your emptiness?
Does the music drown the sound of your pain?
Does it matter you were 'life of the party' last night,
When you wake up in bed with your shame?

As you hit your knees in surrender
Will you abandon the life you once knew?
As you grow, lift your heart towards heaven
And your soul will be renewed.

Are you ready to give your life to Him?
Are you open to joy and love?
Now you've found what you came here searching for;
Eternal grace from our Father above.

-Katie Anderson

23. apríl 2008 klukkan 11:07
Ólafur Jón Magnússon
6 athugasemdir
26mars

páskablogg..

   

Ahhh.. páskar, yndislegt frí. Við fáum frí til að fagna sigri Jesú Krists yfir dauðanum. Það sem Hann gerði fyrir okkur er svo dásamlegt. Mig langar til þess að lofsyngja Hann. Fyrir náð Guðs gaf Hann okkur son sinn Jesú til þess að taka burt syndir okkar. Guð sýndi hversu mikið Hann elskar okkur. Hann framkvæmdi sína fullkomnu áætlun sem Hann hafði unnið að síðan við fengum okkur bita af eplinu. Þessi áætlun frelsaði mannkynið.  Þessi áætlun var erfið. Hún reyndi á tilfinningar Guðs í garð sköpunnar sinnar og tilfinningar sköpunarinnar í garð Guðs. Þessi leið var ekki einföld, en hún var eina leiðin. Margir þjáðust en Guð grét vegna þjáninga þeirra. Margir grétu og syrgðu en Guð var með þeim í þrengingunum. Margir voru niðurlægðir og drepnir en Guð stóð við hlið þeirra og þjáðist með þeim. Hún kostaði líka sitt. Jesús kvaldist fyrir frelsi okkar, Hann dó fyrir syndir okkar. Hann tók ekki aðeins á sig syndir okkar heldur tók Hann alla veikleika okkar á sig. Á föstudeginum langa var Jesús húðstrýktur þrjátíu og níu sinnum. Sumir segja að meginflokkar sjúkdóma og veikinda séu þrjátíu og níu. Það má segja að Jésú hafi kvalist fyrir allar tegundir sjúkdóma. Þvílíkur kærleikur og þvílík ást sem bjó að baki þessara verka. Oft á tíðum skil ég samt ekkert í Guði. Ég spyr mig oft þegar ég les í Gamla testamentinu ,, Þjónaði dauði þessa fólks einhverjum tilgangi?" ; ,,Er þetta kærleikur?". Ég hræddur um að ég finni enginn svör í bili nema það að þetta hafi verið hluti af áætlun Guðs til þess að frelsa heiminn. Ég trúi því að ég fái betri útskýringar á himnum þegar þangað kemur. Ég ætla að muna eftir að spyrja Guð um þessa hluti þá.   

Mig langar til að deila með ykkur sámi 91

1Sá er situr í skjóli Hins hæsta
og dvelst í skugga Hins almáttka
2segir við Drottin:
„Hæli mitt og háborg,
Guð minn, er ég trúi á.“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans,
frá drepsótt eyðingarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum,
undir vængjum hans mátt þú hælis leita,
trúfesti hans er skjöldur og vígi.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar
eða örina sem flýgur um daga,
6drepsóttina sem læðist um í dimmunni
eða sýkina sem geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið
og tíu þúsund þér til hægri handar
þá nær það ekki til þín.
8Þú munt sjá með eigin augum,
horfa á hvernig óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn,
þú hefur gert Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig
og engin plága nálgast tjald þitt
11því að þín vegna býður hann út englum sínum
til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér
svo að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú munt stíga yfir ljón og nöðru,
troða fótum ungljón og dreka.
14Þar sem hann er mér trúr bjarga ég honum,
ég vernda hann því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig mun ég bænheyra hann,
ég er hjá honum í neyðinni,
ég frelsa hann og geri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga
og læt hann sjá hjálpræði mitt. 

 

26. mars 2008 klukkan 01:58
Ólafur Jón Magnússon
3 athugasemdir
12mars

...mooorwg

Sumir tala um að lífið sé ekki þess virði að lifa því. Að það hafi engan tilgang. Ég held að þá sé verið að horfa á vitlausa hlið málsins. Ég vil meina að þú eigir frekar að spyrja þig hvort þú sért þess virði að taka þátt í lífinu. Svarið er einfallt. Guð sér að þú ert verður þess. Þú ert fjársjóður í augum Guðs. Guð gefur þér meira að segja persónulegan tilgang með lífinu. Hann gefur þér eitthvað verðmætt til að lifa fyrir.Þú þarft ekki að sprurja hvort lífið sé þess virði að lifa fyrir því um leið að þú lifir því er lífið orðið þess virði.




Þetta er stutt blogg því ég þarf að fara í tíma... endilega athugasemdið!

ólijón

12. mars 2008 klukkan 10:57
Ólafur Jón Magnússon
1 athugasemd
26febrúar

smá snjókorn..

Það er svolítið fyndið hvað snjórinn hagar sér, alltaf þegar manni langar í snjó þá kemur hann ekki og svo loksins þegar hann kemur er hann á vitlausum tíma og maður vill að það sé komið vor... Þessi náttúra (andvarp). Ég veit ekki kannski er það bara ég sem langar alltaf í snjó á vitlausum tíma. Ég er alla vegana búinn að komast að því að það þýðir ekki að kvarta undan veðrinu því ekki stjórna ég því.

En núna fyrr í morgun henti mig skemmtilegur atburður. Þannig er mál með vexti að ég fattaði í gærkvöldi að ég kæmist ekki á söngvakeppnina því ég á að vinna á þriðjudagskvöldum. Ég var þvílíkt vonsvikinn að missa af einstöku tækifæri að heyra kristinn syngja:D. Ég sá ekki fram á það að ég hefði neinn tíma í dag til að redda einhverjum til að vinna fyrir mig en þegar ég var að borða morgunmatinn í morgun fékk ég sms frá stærðfræðikennaranum mínum um að tíminn félli niður. Það er fyrsti tími og næsti byrjar ekki fyrr en klukkan 10. Ég sá mér þess vegna leik á borði og fór út í 11-11 um leið og hún opnaði og náði að redda mér afleysingu eins ekkert væri léttara. Ég meina pæliði í heppninni..

Ég mæli með gjeggjuðum myndum á http://www.worldpressphoto.com . Þar eru fréttaljósmyndir ársins og þær eru mjög góðar. Maður sér svona hvað er að gerast með nýju sjónarhorni.

Ég lofa skemmtilegra bloggi næst.. Með einhverjum djúsí pælingum, spennið þess vegna beltin. 
26. febrúar 2008 klukkan 12:21
Ólafur Jón Magnússon
3 athugasemdir
21febrúar

Þetta er ekkert mál...

Úú...bloggið byjar með stórum orðum sem ég vona að verði fyrirheit um að eitthvað verði bloggað hér og ekki bara einhver sóðaskapur heldur eitthvað sem kætir ykkar hjarta eða vekur ykkur til umhugsunar..

Einhvern veginn líða dagarnir fram hjá án þess heilsa og fljótlega hefur vika liðið.. enn ein vika í þessu tímaflóði. Það er verst að hvernig sem maður reynir að nýta tímann þá rennur hann í burtu. Maður feikist einhvern veginn um í tímaleysi eins og laufblað í stormi. Dagarnir verða eins, allt verður reglubundið og maður vaknar á morgnana og svo fyrr en varir er komið kvöld. Finnið þið fyrir þessu? Ég var að spá að ef ég hefði ekki von um eilíft líf þá væri ég mjög stressuð manneskja.. 

Tíminn er eins og vatnið,
og vatnið er kalt og djúpt
eins og vitund mín sjálfs.

Og tíminn er eins og mynd,
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs.

Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.

þetta er 1. erindi í ljóðinnu Tíminn og vatnið eftir Stein Steinarr

-ólijón


 

21. febrúar 2008 klukkan 23:40
Ólafur Jón Magnússon
Almennt
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Ólafur Jón Magnússon
  • Kennitala: 0407912489
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: nei enginn hjúskapur í gangi..
  • Um mig: Ég er barn Guðs, sonur hans. Takk Jesús! Ég og Heilagur Andi erum vinir og ég er að kynnast honum miklu betur. Sky is not the limit!
  • Annað: Jesús er yndislegur! Hann kynnti mig fyrir pabba og sendi Heilagan Anda til mín. Ég þrái að allir sem lesa þetta blogg megi kynnast Jesú Kristi og Föðurnum og Heilögum Anda til hins ýtrasta!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...